Til að auðvelda tilvonandi brúðhjónum valið þegar kemur að eftirrétti kvöldsins bjóðum við uppá tvær leiðir: Annars vegar að panta brúðartertusmakk til að taka með heim og mynda sér skoðun í rólegheitunum heima hjá sér en að því loknu að bóka tíma í smakk og ráðgjöf hjá kökumeisturum 17 sorta. Þar ræðum ykkar hugmyndir og útfærslur og saman er teiknaður upp draumaeftirrétturinn eða kakan. Tímabókanir eru oftast á mánudögum til miðvikudaga á milli 10.15 og 14.15.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki þegar þið farið á greiðslusíðuna hvaða tími hentar ykkur best.